Vorbraut 8-12

Verkefnið

ÞG Verk kynnir með stolti 42 vandaðar íbúðir við Vorbraut 8-12 í Hnoðraholti, 210 Garðabæ. Húsin þrjú eru fjögurra hæða og bjóða upp á fjölbreyttar tveggja til fjögurra herbergja íbúðir af alls kyns stærðum og gerðum, allt frá 50fm tveggja herbergja íbúðum í 150fm 4ra herbergja þakíbúðir.

Íbúðirnar eru hannaðar með þægindi, birtu og góða nýtingu rýma í huga. Þær eru bjartar og vel skipulagðar, með vönduðum innréttingum, nútímalegu yfirbragði og fallegum tengslum við nærumhverfið, margar hverjar með frábæru útsýni. Undir húsunum er bílakjallari og fylgir bílastæði í bílakjallara með flestum íbúðum.

s


Heimir
Hallgrímsson