Vorbraut stendur á einstaklega góðum stað í Garðabæ, í friðsælu og grænu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Í Hnoðraholti eru fallegar gönguleiðir og fjölbreytt útivistarsvæði, stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og íþróttaaðstöðu.

Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar. Umhverfið býður upp á gott jafnvægi milli rólegs heimilislífs, náttúru og virks daglegs lífs.


Kauptu með ÞG Sjóð

ÞG Sjóður er sjóður sem fjárfestir í íbúðarhúsnæði sem er byggt af ÞG verktökum ehf. sem hefur byggt þúsundir íbúða.

ÞG Sjóður fjárfestir til 10 ára fyrir allt að 20% af kaupverði fasteigna og eignast því hlutdeild í viðkomandi fasteign.

Einstaklingur leggur fram að lágmarki 10% af kaupverði og tekur lán hjá lánastofnun fyrir allt að 70% af kaupverði fasteignar.

Einstaklingur eignast heimili sem hann hefur fullan umráðarétt yfir en greiðir leigu af hlut ÞG Sjóðs.


Heimir
Hallgrímsson