• Íbúðirnar skilast fullbúnar nema án parkets. Innréttingar eru frá Ormsson og bera með sér vandað og hlýlegt yfirbragð. Eldhúsinnréttingar og fataskápar eru í dökku viðarútliti sem gefur íbúðunum nútímalegan og fágaðan svip. Skúffur og skápar eru með ljúflokun og lýsing er undir efriskápum í eldhúsum.

    Borðplötur eru ýmist slitsterkar Formica borðplötur frá Ormsson eða steinborðplötur frá Granítsmiðjunni. Eldhús skilast með tækjum og búnaði frá Siemens, þ.e.a.s blástursofni, uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp. Helluborð eru ýmist spanhelluborð frá Siemens eða Airforce helluborð frá Ormsson með innbyggðri viftu.

    Á baðherbergjum eru neðri skápar með skúffu og efri skápar með spegli, sem tryggir bæði gott geymslupláss og snyrtilegan frágang.

    Efnisval í Vorbraut 10-12


Kauptu með ÞG Sjóð

ÞG Sjóður er sjóður sem fjárfestir í íbúðarhúsnæði sem er byggt af ÞG verktökum ehf. sem hefur byggt þúsundir íbúða.

ÞG Sjóður fjárfestir til 10 ára fyrir allt að 20% af kaupverði fasteigna og eignast því hlutdeild í viðkomandi fasteign.

Einstaklingur leggur fram að lágmarki 10% af kaupverði og tekur lán hjá lánastofnun fyrir allt að 70% af kaupverði fasteignar.

Einstaklingur eignast heimili sem hann hefur fullan umráðarétt yfir en greiðir leigu af hlut ÞG Sjóðs.


Heimir
Hallgrímsson