• ÞG Verk kynnir með stolti 42 vandaðar íbúðir við Vorbraut 8-12 í Hnoðraholti, 210 Garðabæ. Húsin þrjú eru fjögurra hæða og bjóða upp á fjölbreyttar tveggja til fjögurra herbergja íbúðir af alls kyns stærðum og gerðum, allt frá 50fm tveggja herbergja íbúðum í 150fm 4ra herbergja þakíbúðir.

    Íbúðirnar eru hannaðar með þægindi, birtu og góða nýtingu rýma í huga. Þær eru bjartar og vel skipulagðar, með vönduðum innréttingum, nútímalegu yfirbragði og fallegum tengslum við nærumhverfið, margar hverjar með frábæru útsýni. Undir húsunum er bílakjallari og fylgir bílastæði í bílakjallara með flestum íbúðum.


Kauptu með ÞG Sjóð

ÞG Sjóður er sjóður sem fjárfestir í íbúðarhúsnæði sem er byggt af ÞG verktökum ehf. sem hefur byggt þúsundir íbúða.

ÞG Sjóður fjárfestir til 10 ára fyrir allt að 20% af kaupverði fasteigna og eignast því hlutdeild í viðkomandi fasteign.

Einstaklingur leggur fram að lágmarki 10% af kaupverði og tekur lán hjá lánastofnun fyrir allt að 70% af kaupverði fasteignar.

Einstaklingur eignast heimili sem hann hefur fullan umráðarétt yfir en greiðir leigu af hlut ÞG Sjóðs.


Heimir
Hallgrímsson